Um er að ræða nýtt íbúðahverfi við ströndina í Moncofa á Costa del Azahar. Moncofa er notalegur strandbær með fallegum sandströndum, rólegu umhverfi og allri helstu þjónustu í göngufæri, þar á meðal verslunum, veitingastöðum og kaffihúsum.
Íbúðahverfið samanstendur af 184 íbúðum í tveimur sjö hæða byggingum. Í boði eru tveggja og þriggja svefnherbergja íbúðir, allar með rúmgóðum svölum og sjávarútsýni, ýmist beint út á sjó eða til hliðar. Íbúðirnar eru bjartar og vel skipulagðar með stórum gluggum og opnu rými fyrir stofu og eldhús.
Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með húsgögnum og eldhústækjum. Baðherbergin eru með innréttingum, speglum og sturtugleri. Loftkæling og loftvarmadæla fyrir heitt vatn eru einnig innifalin. Með hverri íbúð fylgir sérmerkt bílastæði og geymsla og lyfta er í byggingunum.
Sameiginleg útisvæði eru rúmlega 4.000 m² að stærð og þar er að finna sundlaugar fyrir fullorðna og börn, fallega garða, líkamsræktaraðstöðu, setustofu og leiksvæði fyrir börn. Svæðið er lokað og afgirt.
Staðsetningin er góð, aðeins um 300 metrar frá ströndinni. Um 30 km eru til Castellón og 50 km til Valencia. Valencia-flugvöllur er í um 55 km fjarlægð og Castellón-flugvöllur í um 45 km fjarlægð.
Þessar íbúðir henta vel bæði sem framtíðarheimili, frííbúð eða fjárfesting, með góðri aðstöðu og fallegu útsýni yfir Miðjarðarhafið.