Um er að ræða glæsilega nýbyggingu með 130 íbúðum í Moncofa á Costa del Azahar, aðeins 500 metra frá ströndinni og beint á móti fallega Belcaire-garðinum. Hér er um að ræða rúmgóða þakíbúð með þremur svefnherbergjum og stórum þaksölum með sjávarútsýni.
Íbúðin er hönnuð með áherslu á birtu, gott skipulag og þægindi. Hún verður afhent fullbúin með húsgögnum og eldhústækjum. Baðherbergin verða með innréttingum, speglum og sturtugleri. Einnig fylgir fullbúið loftkælikerfi og loftvarmadæla fyrir heitt vatn. Sérmerkt bílastæði og geymsla fylgja íbúðinni.
Sameiginleg aðstaða er góð og þar má finna fallega garða, stóra sundlaug og félagsrými fyrir íbúana. Íbúðahverfið er lokað og afgirt og býður upp á rólegt og öruggt umhverfi.
Moncofa er notalegur strandbær í Castellón-héraði með fallegum sandströndum og allri helstu þjónustu, þar á meðal verslunum, veitingastöðum, kaffihúsum og skólum. Castellón-borg er í um 30 km fjarlægð og Valencia í um 50 km. Valencia-flugvöllur er í um 55 km fjarlægð og Castellón-flugvöllur í um 45 km. Mediterráneo-golfvöllurinn er í um 20 km fjarlægð.
Hér gefst gott tækifæri til að eignast nýja þakíbúð með sjávarútsýni, nálægt ströndinni og allri helstu þjónustu.