Falleg nýbyggð 2 svefnherbergja íbúð í El Raso, Guardamar del Segura, á rólegum stað nálægt ströndinni og umkringdri fallegri náttúru. Íbúðin er björt og nútímaleg og með rúmgóðum svölum sem henta vel til að njóta sólar og góða loftslagsins allt árið.
Þetta nýja verkefni býður upp á sameiginlega sundlaug, fallega garða, líkamsrækt og sameiginlegt vinnusvæði. Íbúðin er með góðum frágangi, fullbúnu eldhúsi, nútímalegu baðherbergi, loftvarmadælu fyrir heitt vatn og undirbúningi fyrir innbyggða loftkælingu.
El Raso er hluti af Guardamar del Segura og er við friðlýsta La Mata lónið. Guardamar er þekkt fyrir langar sandstrendur, fallega furuskóga og rólegt alþjóðlegt andrúmsloft. Í nærliggjandi umhverfi er að finna alla nauðsynlega þjónustu og afþreyingu, s.s. mikið úrval veitingahúsa, matvöruverslanir o.fl. Í innan við 15 mínútur akstur finnurðu svo 4 golfvelli, tvær verslunarmiðstöðvar (Las Habaneras og Zenia Boulevard), hinn spennandi og þéttsetna miðbæ Torrevieja, tívolí, hin fallegu náttúrulegu saltvötn Torrevieja sem og hið glæsilega verndað náttúrusvæði sem liggur við sjóinn milli La Mata og Guardamar bæjarins.
Miðbær Guardamar er um 4 km í burtu, strendur Miðjarðarhafsins um 3 km og La Marquesa golfvöllurinn um 8 km. Torrevieja er í um 10 km fjarlægð, La Zenia Boulevard um 20 km og Alicante alþjóðaflugvöllur um 40 km.
Erum með mikið úrval eigna á skrá í þessu frábæra íbúðahverfi.
Frábær 2 svefnherbergja íbúð fyrir þá sem vilja nútímalegt heimili, sumarhús eða góða fjárfestingu nálægt ströndinni á Costa Blanca.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!