Nýbyggð raðhús í glæsilegu íbúðahverfi við Playa del Amerador í El Campello, aðeins um 20 metrum frá ströndinni. Húsin eru 229 m² að stærð og eru með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum.
Húsin eru á tveimur hæðum og eru með bjarta stofu og opið eldhús, gestasalerni, sérverönd og garð. Á efri hæðinni eru svefnherbergin og baðherbergin. Einnig fylgja þaksvalir með forlögn fyrir heitan pott og sumareldhús. Húsin bjóða uppá innbygða loftkælingu, fullbúnu eldhúsi, sérbílastæði og geymslu.
Íbúðahverfið býður svo upp á sameiginlega sundlaug með sjávarútsýni, upphitaðan heitan pott, sólbaðssvæði, líkamsræktarsvæði utandyra og íþróttavöll.
El Campello er vinsæll strandbær rétt norðan við Alicante og býður upp á fjölbreyttar strendur, veitingastaði, verslanir og aðra þjónustu.
Alicante miðbær er í um 15 km fjarlægð, Bonalba golfvöllurinn í um 9 km og Alicante flugvöllur í um 28 km fjarlægð.
Endilega hafðu samband fyrir frekari upplysíngar.