Nýbyggt raðhús í glæsilegu íbúðahverfi við Playa del Amerador í El Campello, aðeins um 20 metrum frá ströndinni. Húsið er 152 m² að stærð og er með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum.
Húsið er á tveimur hæðum og er með bjarta stofu og opið eldhús, gestasalerni, sérverönd og garð. Einnig fylgja þaksvalir með forlögn fyrir heitan pott og sumareldhús. Húsið býður upp á innbyggða loftkælingu, fullbúið eldhús, sérbílastæði og geymslu.
Íbúðahverfið býður upp á sameiginlega sundlaug með sjávarútsýni, upphitaðan heitan pott, sólbaðssvæði, líkamsræktarsvæði utandyra og íþróttavöll.
El Campello er vinsæll strandbær rétt norðan við Alicante og býður upp á fjölbreyttar strendur, veitingastaði, verslanir og aðra þjónustu. Staðsetningin hentar vel fyrir þá sem vilja njóta strandlífs en hafa jafnframt greiðan aðgang að Alicante og öðrum bæjum á Costa Blanca.
Alicante miðbær er í um 15 km fjarlægð, Bonalba golfvöllurinn í um 9 km og Alicante flugvöllur í um 28 km fjarlægð.
Endilega hafðu samband fyrir frekari upplýsingar.