Nýbyggt og glæsilegt raðhús í eftirsóttu íbúðahverfi við Playa del Amerador í El Campello, aðeins um 20 metrum frá ströndinni. Húsið er 118 m² að stærð og er með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum.
Húsið er á tveimur hæðum og býður upp á bjarta stofu og opið eldhús, gestasalerni, sérverönd og garð. Einnig fylgja þaksvalir með forlögn fyrir heitan pott og sumareldhús, sem henta vel til að njóta útiveru og fallegs umhverfis. Húsið er með innbyggðri loftkælingu, fullbúnu eldhúsi, sérbílastæði og geymslu.
Íbúðahverfið býður upp á glæsileg sameiginleg svæði, þar á meðal sundlaug með sjávarútsýni, upphitaðan heitan pott, líkamsræktarsvæði utandyra og íþróttavöll.
El Campello er vinsæll strandbær rétt norðan við Alicante og býður upp á fjölbreyttar strendur, veitingastaði, verslanir og alla helstu þjónustu. Hér er því hægt að njóta rólegs strandlífs en hafa jafnframt greiðan aðgang að Alicante og öðrum bæjum á Costa Blanca.
Alicante miðbær er í um 15 km fjarlægð, Bonalba golfvöllurinn í um 9 km og Alicante flugvöllur í um 28 km fjarlægð.
Endilega hafðu samband fyrir frekari upplýsingar eða til að bóka skoðun.