Um er að ræða glæsilega nýbyggingu með aðeins níu íbúðum í miðbæ Benijófar á suðurhluta Costa Blanca. Hér er um að ræða rúmgóða þakíbúð með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og stórum þaksölum. Byggingin er staðsett í göngufæri við alla helstu þjónustu og hentar vel bæði til heilsársbúsetu og sem frííbúð.
Íbúðin verður afhent með vönduðum frágangi og búnaði. Eldhúsið verður með eldhústækjum og baðherbergin með innréttingum, speglum og sturtugleri. Einnig fylgir LED-lýsing, undirbúningur fyrir innbyggt loftkælikerfi, loftvarmadæla fyrir heitt vatn og öryggishurð. Sérmerkt bílastæði í neðanjarðarbílageymslu fylgir íbúðinni og lyfta er í byggingunni.
Á þaki byggingarinnar verður sameiginleg sundlaug með sólbaðssvæði og grillaðstöðu, sem íbúar geta nýtt sér.
Benijófar er notalegur spænskur bær með góðri þjónustu, verslunum og veitingastöðum. Strendur Guardamar eru í um 9 km fjarlægð, La Marquesa og La Finca golfvellirnir í um 6 km og Torrevieja í um 12 km. Alicante-flugvöllur er í um 35 km fjarlægð og Murcia-flugvöllur í um 65 km.
Hér gefst gott tækifæri til að eignast nýja og nútímalega þakíbúð á góðum stað, með alla helstu þjónustu í göngufæri og stutt í strendur og golfvelli.