Nýbyggð einbýlishús í litlu íbúðahverfi með aðeins fjórum húsum í San Pedro del Pinatar, aðeins 600 metrum frá ströndinni. Húsin henta vel sem framtíðarheimili, sumarhús eða fjárfesting og eru í göngufæri við verslanir, veitingastaði og aðra þjónustu.
Hvert hús stendur á 500 m² lóð og er á einni hæð. Um er að ræða hús með þremur svefnherbergjum, þar af tvö með sérbaðherbergi, fjórum baðherbergjum, opnu eldhúsi og stofu, þvottahúsi og lokuðum bílskúr. Að utan er rúmgóður garður með einkasundlaug og yfirbyggðri verönd.
Húsin eru með vönduðum frágangi, fullbúnu eldhúsi með heimilistækjum, forlögn fyrir loftræstingu, LED-lýsingu og rafdrifnum gluggahlerum. San Pedro del Pinatar er staðsett á milli Mar Menor og Miðjarðarhafsins og býður upp á notalegt umhverfi við ströndina, með góðri þjónustu og afþreyingu allt í kring.