Um er að ræða glæsilega nýbyggingu í Cala Finestrat, á eftirsóttum stað á norðurhluta Costa Blanca. Hér er um að ræða íbúð með einu svefnherbergi og einu baðherbergi, aðeins 900 metra frá Cala de Finestrat-ströndinni og í stuttu göngufæri frá helstu þjónustu.
Íbúðahverfið samanstendur af 47 nútímalegum íbúðum með einu, tveimur eða þremur svefnherbergjum. Allar íbúðir eru með sérmerktu bílastæði og geymslu. Íbúðin verður afhent með vönduðum frágangi, fullbúnu eldhúsi með eldhústækjum, baðherbergi með innréttingu, spegli og sturtugleri, gólfhita á baðherbergi og innbyggðu loftkælikerfi.
Byggingin er sérstaklega vönduð og um 80% byggingarefna koma frá Porcelanosa. Íbúðirnar eru með A+ orkuflokkun og meðal annars þreföldu gleri, rafdrifnum gluggahlerum, snjallheimiliskerfi og loftvarmadælu fyrir heitt vatn.
Sameiginleg aðstaða er glæsileg og þar má finna sundlaugar fyrir fullorðna og börn, fallega garða, líkamsræktaraðstöðu utandyra og gönguleiðir. Innandyra er einnig heilsulind með upphitaðri sundlaug, sauna, eimbaði, nuddpotti, líkamsræktarsal og slökunarrými.
Staðsetningin er mjög góð, aðeins 400 metrar frá La Marina-verslunarmiðstöðinni og um 5 km frá miðbæ Benidorm. Villajoyosa er í um 6 km fjarlægð, Puig Campana-golfvöllurinn í 6 km og Alicante-flugvöllur í um 55 km fjarlægð.
Hér gefst gott tækifæri til að eignast nútímalega íbúð með vandaðri aðstöðu á eftirsóttum stað, nálægt ströndinni og helstu þjónustu.