Þessar glæsilegu nýbyggðu íbúðir eru staðsettar í Los Alcázares á Costa Cálida, aðeins um 500 metrum frá ströndum Mar Menor og við hinn vinsæla Serena Golf golfvöll. Í boði eru 2 og 3 svefnherbergja íbúðir með björtu alrými, opnu eldhúsi og rúmgóðu útisvæði þar sem hægt er að njóta sólarinnar og fallegs útsýnis. Sumar eignir bjóða upp á útsýni yfir golfvöllinn og Mar Menor.
Með hverri íbúð fylgir einkabílastæði og sérgeymsla. Eignirnar eru meðal annars búnar rafdrifnum gardínum í svefnherbergjum, forlögn fyrir loftkælingu, tvöföldu gleri og fullbúnum baðherbergjum. Á sameiginlegu svæðinu er fallegur garður með sundlaug sem býður upp á frábæra aðstöðu til afslöppunar í sólríku Miðjarðarhafsloftslaginu.
Los Alcázares er vinsæll strandbær sem býður upp á fallega strandgöngu, breiðar sandstrendur og fjölbreytt úrval veitingastaða, verslana og þjónustu. Svæðið er einnig þekkt fyrir frábæra aðstöðu til sjóíþrótta og nokkra af bestu golfvöllum Costa Cálida í næsta nágrenni. Þessar íbúðir henta jafnt sem heilsársbúseta, orlofseign eða góð fjárfesting á einum eftirsóttasta stað svæðisins.