Nýbyggðar sérhæðir í San Miguel de Salinas – Costa Blanca
Þetta nútímalega íbúðaverkefni í útjaðri San Miguel de Salinas býður upp á fallegar nýbyggðar sérhæðir í rólegu og náttúrulegu umhverfi, en samt í göngufæri við alla helstu þjónustu. Bærinn sameinar bæði nálægð við strönd og friðsælda náttúru!
Í boði eru 2 og 3 herbergja sérhæðir með tveimur mismunandi útfærslum. Jarðhæðir eru með einkagarði og geymslu, en efri hæðir eru með einkasólverönd þar sem hægt er að njóta sólar og útivistar allt árið um kring. Íbúðirnar eru hannaðar með nútímalegu skipulagi, mikilli birtu og góðum útisvæðum sem styðja við Miðjarðarhafslífsstílinn.
Sameiginlega aðstaðan er mjög glæsileg og lokað og öruggt íbúðarsvæði með þremur stórum sundlaugum fyrir fullorðna og börn og yfir 3.400 m² af fallegum grænum svæðum. Þetta skapar afslappað og fjölskylduvænt umhverfi fyrir alla aldurshópa.
Íbúðirnar eru byggðar með vönduðum efnum og innifela meðal annars fullbúið eldhús, góða einangrun með tvöföldu gleri, öryggishurð, baðherbergishúsgögn og undirbúning fyrir loftkælingu.
Staðsetningin er mjög góð með stutt í golfvelli eins og Las Colinas, Vistabella og Campoamor, strendur Orihuela Costa í um 11 km fjarlægð og La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina í aðeins 9 km fjarlægð. Alicante flugvöllur er í um 35 mínútna akstursfjarlægð.