Nýtt lúxus íbúðasvæði í Lomas de Cabo Roig. Um er að ræða 24 íbúðir og þakíbúðir með 2 og 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, ásamt rúmgóðum sameiginlegum svæðum og góðri aðstöðu.
Á svæðinu er stór sundlaug með barnasvæði og heitum potti, græn svæði með leiksvæði, afslöppunar- og grillaðstaða, fullbúin líkamsrækt og coworking svæði með útsýni yfir garða. Einnig er bílastæði í bílakjallara og almenn þjónusta fyrir íbúa.
Hönnun svæðisins einkennist af nútímalegum lúxus, öryggi og næði í litlu og vel skipulögðu íbúðasamfélagi.
Staðsetningin er mjög góð, í Lomas de Cabo Roig, um 1 km frá ströndinni í Cabo Roig á Orihuela Costa. Svæðið er vel tengt og í nágrenni eru verslanir, þjónusta og verslunarmiðstöðvar. Alicante flugvöllur er í um 30 mínútna akstursfjarlægð og Murcia-Corvera í um 1 klukkustund.