Nýtt og glæsilegt íbúðasvæði í Orihuela Costa á Costa Blanca, aðeins um 4 km frá ströndum svæðisins. Um er að ræða lokað og vel skipulagt hverfi á vinsælum stað með stuttri fjarlægð í alla helstu þjónustu, golf og verslun, þar sem Villamartín golfvöllur og La Zenia Boulevard eru í um 5 mínútna akstursfjarlægð.
Í boði eru annars vegar raðhús með 2–3 svefnherbergjum og aðgangi að sameiginlegri sundlaug og hins vegar sjálfstæð einbýlishús með 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum og einkasundlaug. Hægt er að kaupa bílastæði í kjallara og geymslu gegn aukagjaldi.
Eignirnar eru nútímalega hannaðar með góðu skipulagi, orkusparandi kerfum, fullbúnum baðherbergjum, innbyggðum skápum og forlögn fyrir loftræstingu.
Stutt er í strönd, golf og þjónustu, auk þess sem Alicante flugvöllur er í um 40 mínútna akstursfjarlægð.