Nýbyggt íbúðasvæði í Orihuela Costa á Alicante-svæðinu. Um er að ræða nútímaleg raðhús með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og opnu eldhúsi sem tengist stofu og borðstofu. Eignirnar eru með innbyggðum fataskápum, verönd, þaksólpalli og einkagarði. Sérbílastæði fylgir hverri eign.
Á svæðinu er sameiginleg sundlaug og góð sameiginleg aðstaða fyrir íbúa.
Staðsetningin er góð með stuttri fjarlægð í helstu þjónustu, verslanir, veitingastaði og afþreyingu. Aðeins um 10 mínútur eru að ströndum svæðisins, Villamartín golfvellinum og La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni. Alicante-flugvöllur er í um 40 mínútna akstursfjarlægð og Murcia Corvera-flugvöllur í um klukkustund frá svæðinu.