Fallegt raðhús á frábærum stað við hinn glæsilega 18 holu Vistabella Golfvöll. Svæðið í kring er sannkölluð paradís þar sem allar helstu þjónustur eru í nágrenninu, svo sem apótek, matvöruverslanir, veitingahús og bari. Einnig er mikið af afþreyingu á svæðinu, þar á meðal paddle tennisvöllum, bocce völlum og golfkennsla fyrir áhugasama.
Þetta fallega raðhús er 95,95 m² á tveimur hæðum. Á neðri hæðinni er baðherbergi, rúmgott svefnherbergi, björt stofa með opnu eldhúsi og verönd að framan. Á annarri hæð er glæsileg hjónasvíta með sér baðherbergi, auk svefnherbergis og baðherbergis. Þar er einnig hægt að ganga út á svalir og fara þaðan upp á 35 m² þaksvalir með ótrúlegu útsýni.
Í sameigninni er stór og falleg sundlaug sem og leiksvæði fyrir börn.
Bílastæði fylgir eigninni.