Þessi glæsilegu nýbyggðu einbýlishús eru staðsett í Polop á stórum lóðum, frá um 351 m², og bjóða upp á fallegt sjávarútsýni. Húsin eru hönnuð með áherslu á þægindi og útivist og eru með einkasundlaug, rúmgóðri verönd og yfirbyggðu útisvæði ásamt einkabílastæði. Í boði eru mismunandi útfærslur, bæði á einni eða tveimur hæðum, og einnig er hægt fá aukalega þaksvali með enþá betra sjávarútsýni.
Húsin eru með vönduðum frágangi og meðal annars eru rafdrifnar álgardínur í stofu, eldhúsi og svefnherbergjum, gólfhiti á baðherbergjum og undirbúningur fyrir innbyggða loftkælingu. Þrjár sólarsellur eru á hverri eign og húsin eru með A-orkuflokkun.
Polop er fallegur og rólegur spænskur bær í Marina Baja, umkringdur náttúru og fallegu landslagi. Stutt er í strendur og helstu bæi á Costa Blanca. Benidorm og Altea eru í um 15 mínútna akstursfjarlægð, La Nucía í um 5 mínútur og Alicante-borg í um 30 mínútur. Alicante-flugvöllur er í um 40 mínútna akstursfjarlægð og næsta strönd í um 8 km fjarlægð. Þetta er góður kostur fyrir þá sem vilja rólegt umhverfi, fallegt sjávarútsýni og jafnframt stutt í strönd, þjónustu og afþreyingu.