Nýtt og glæsilegt einbýlishús í Santa Rosalia Lake and Life Resort í Murcia. Húsið er vel skipulagt með 3 rúmgóðum svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, gestasalerni og stórum fullfrágengnum kjallara sem hægt er að nýta sem sjónvarpsherbergi, líkamsrækt, skrifstofu, leikherbergi eða auka svefnrými.
Bjart og opið alrými sameinar stofu, borðstofu og fullbúið nútímaeldhús með stórum gluggum sem opnast út í einkagarð með sundlaug og verönd. Einkabílastæði fylgir eigninni og vandaður frágangur er í öllu húsinu, þar á meðal innbyggðir skápar, loftkæling og sólarplötur sem auka orkunýtni heimilisins.
Santa Rosalia Lake and Life Resort er einstakt lokað resort með stórri kristaltærri lónslaug, hvítum sandströndum, fallegum göngustígum, íþróttaaðstöðu og golfvöllum í nágrenninu. Staðsetningin er frábær, aðeins nokkrar mínútur frá ströndum Mar Menor og nálægt veitingastöðum, þjónustu og afþreyingu. Frábær kostur sem sumarhús, fjárfesting eða framtíðarheimili við Miðjarðarhafið.