Á Vistabella Golf Resort í Orihuela eru þessi glæsilegu nýbyggðu einbýlishús staðsett í rólegu umhverfi á Costa Blanca, á milli San Miguel de Salinas og Los Montesinos. Í boði eru tvær gerðir húsa: annars vegar hús á einni hæð með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og einkasólpalli á þaki og hins vegar tveggja hæða hús með 4 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum og verönd á efri hæð. Öll húsin standa á um 300 m² lóðum og eru með einkasundlaug og bílastæði á lóð.
Húsin eru afhent með fullbúnu eldhúsi og heimilistækjum, loftkælingu, rafdrifnum gluggatjöldum, útilýsingu og fullbúnum baðherbergjum með vönduðum innréttingum.
Vistabella Golf Resort er vinsæll og lokaður golfkjarni með 18 holu golfvelli, padelvöllum, matvöruverslun, veitingastöðum og annarri þjónustu. Strendur Torrevieja og Guardamar del Segura eru í um 20 mínútna akstursfjarlægð og Alicante-flugvöllur er í um 55 km fjarlægð. Þetta er frábær kostur fyrir þá sem leita að nútímalegu heimili eða orlofseign á eftirsóttum stað við golfvöll.