Öruggt og einfalt Kaupaferlið á Spáni
Kaupferlið sem á sér stað við kaup á spænskum fasteignum er að mörgu leyti frábrugðið því sem þú þekkir á Íslandi en áratuga reynsla okkar tryggir að það gangi vel og örugglega fyrir sig. Þannig bjóðum við einungis upp á fasteignir sem uppfylla háa gæðastaðla og örugga byggingaraðila, auk þess sem allir starfsmenn Perla þekkja svæðið til hins ýtrasta eftir áratuga búsetu. Íslenskur Löggiltur fasteignasali Perla sem jafnframt er menntuð spænskufræðingur auk enskumælandi spænsks lögfræðings Perla sjá svo um undirbúning og gerð kaupsamnings og afsals, auk þess að þýða fyrir þig öll nauðsynleg gögn – á íslensku. Þannig sjáum við til þess að þú kynnist svæðinu, skoðir úrval hágæða fasteigna, og þér sé tryggt algjört öryggi við fasteignaviðskipti þín, á ilhýra málinu.
Kaupferlið hefst þegar að þú hefur samband við okkur og segir okkur hver drauma eignin þín er. Þú getur haft samband við okkur með því að:
- Senda okkur mail á info@perlainvest.com
- Hringja í síma 0034 -96 676 5972 eða 0034- 8933911
- Koma við á skrifstofunni okkar í Villamartin þar sem við munum taka vel á móti þér.
Við svörum öllum fyrirspurnum um hæl og hvort sem þú kemur í skipulagða skoðunarferð á vegum Perla eða á eigin vegum, þá hlökkum við til að sjá þig.
Hafðu samband - við tökum vel á móti þér!
Skref 1Hafðu Samband
Ferðalagið þitt byrjar þegar þú hefur samband. Hafðu samband við okkur í tölvupósti eða síma, eða heimsæktu okkur á skrifstofunni í Villamartín.
Við hlustum á þarfir þínar og hjálpum þér að skoða eignir sem henta lífsstíl þínum og markmiðum best.
Heimilisfang CC. Los Dolses. Local nº 142. 03189 Villamartin - Orihuela Costa. Alicante (Spain)
Monday - Friday: 10.00 - 17.00
Skref 2 Staðfesting & Samningur
Þegar þú hefur fundið draumafasteignina þína er kaupsamningur undirritaður milli kaupanda og seljanda. Þetta ferli svipar að ákveðnu leyti til kaupsamninga á Íslandi, en afhending eignarinnar fer þó ekki fram fyrr en við afsal.
Íslenskur löggiltur fasteignasali og spænskur lögfræðingur hjá Perla sjá um undirbúning og gerð kaupsamningsins fyrir þína hönd.
Þegar kemur að afhendingu eignarinnar, samkvæmt því sem kveðið er á um í kaupsamningnum, er gengið frá afsali. Það fer fram á skrifstofu lögbókanda, eða notario, en embætti lögbókanda er mikilvæg ábyrgðarstaða á Spáni og að ákveðnu leyti sambærilegt starfi sýslumanns á Íslandi.
Lögfræðingur Perla og löggiltur fasteignasali undirbúa afsalið í samstarfi við lögbókandann og þýða það yfir á íslensku fyrir þig áður en það er undirritað.
Umboð við undirritun afsals
Ef þú hefur ekki tök á að vera viðstaddur undirritun afsalsins getum við leiðbeint þér við að veita ábyrgum aðila umboð til að undirrita fyrir þína hönd.
Umboðið er hægt að útbúa hér á Spáni, til dæmis þegar gengið er frá kaupsamningi og þá fyrir framan lögbókanda, eða á Íslandi.
Ef þú ert staddur á Íslandi þarf umboðið að vera undirritað og vottað hjá sýslumanni. Þar er það jafnframt stimplað fyrir notkun erlendis og síðan þarf að fá apostille-stimpil hjá utanríkisráðuneytinu.
Umboðið er síðan sent til umboðshafans á Spáni með ábyrgðarpósti. Starfsfólk Perla aðstoðar þig við þetta ferli frá upphafi til enda.
Eftir undirritun afsals
Þegar afsalið hefur verið undirritað færð þú afhent bráðabirgðaafrit af því, svokallað „copia simple“. Frumrit afsalsins er síðan sent til fasteignaskrárinnar (Registro de la Propiedad) til skráningar.
Þegar skráningu er lokið er afsalið sent aftur á skrifstofu lögbókandans þar sem það var undirritað eða, ef þú ert með lán á eigninni, til bankans þíns. Þar getur þú óskað eftir að fá afsalið afhent.
Eign í byggingu
Ef eignin sem þú kaupir er enn í byggingu þegar gengið er frá kaupsamningi fylgjast starfsmenn Perla með því að umsamin verklok og skilalýsing standist.
Þér er ávallt velkomið að hafa samband við okkur á meðan á byggingarframkvæmdum stendur til að fá upplýsingar um stöðu mála og myndir sendar.
Við vitum hversu mikilvægt það er að fylgjast með framvindu mála þegar þú ert að kaupa eign í öðru landi. Þess vegna erum við til staðar fyrir þig alla leið og hvetjum þig til að hafa samband hvenær sem er.
Skref 3 Að taka lán
Við erum í samstarfi við leiðandi spænska banka sem lána allt að 75% af andvirði eignarinnar, til allt að 30 ára. Lengd lánstíma fer eftir aldri og innkomu en miða bankarnir við að lántakandi greiði lánið upp fyrir 75 ára aldurinn. Perla sér um að aðstoða þig alla leið og leiðbeina þér með þau gögn sem leggja þarf fram. En ásamt lánaumsókn þarf t.d að leggja fram staðfestingu á tekjum síðasta árs í formi skattaskýrslu, auk afrits af launaseðlum og bankayfirliti síðustu þriggja mánaða, þrátt fyrir að kröfur um fylgiskjöl geti verið breytileg á milli banka. Starfsmenn Perla munu kynna þig fyrir tengilið þínum í bankanum og aðstoða þig við að opna þar bankareikning. Spænskufræðingur Perla sér svo um allar þýðingar á almennum gögnum sem bankinn óskar eftir til að veita þér lán, þér að kostnaðarlausu.
Helstu upplýsingar um lán:
- Allt að 75% af verðmæti eignar
- Afborgunartímabil allt að 30 ár (fer eftir aldri og eign)
- Við hjálpum þér að safna saman, þýða og skila nauðsynlegum skjölum (tekjuskýrslur, launaseðlar, bankayfirlit o.fl.)
Skref 4 Kostnaður við kaupin
Almennt er gott að gera ráð fyrir að 10,5 % til 15% kostnaður vegna kaupanna bætist ofan á kaupverð fasteignar, talan gæti þó orðið lægri. Þessi kostnaður greiðist við afsal og afhendingu eignarinnar, en við munum að sjálfsögðu láta þig fá nánari upplýsingar um kostnað vegna kaupa á eigninni þinni og svara öllum spurningum þínum. Hjá Perla leggjum við metnað okkar í að aðstoða viðskiptavini okkar sem óska eftir bankaláni, við að fá bestu kjör sem í boði eru á hverjum tíma. Hér á eftir má sjá töflu með sundurliðuðum kostnaði, en eins og sjá má er sumur kostnaður fastar tölur á meðan að annar kostnaður reiknast í prósentum, auk þess sem lántökukostnaður er sérstaklega tilgreindur:
| Virðisaukaskattur á eign: 8% - 10% |
Lögfræðikostnaður - Notariakostnaður:
Fer eftir fjölda skjala í þinglýstu skjali o.fl. en er á bilinu: 700 € - 900 € |
Skráningarkostnaður - Eign:
Skráning eignar: 400 € - 500 € |
Skattur (AJD): 1,5% |
| Lántökukostnaður: 1% - 2% |
Notariakostnaður - Lán:
Fer eftir fjölda síðna í lagalegum skjölum. Yfirleitt á bilinu: 700 € - 900 € |
Skráningarkostnaður - Lán: 500 € - 600 € |
Lögfræðikostnaður:
Lögfræðileg þjónusta sem tryggir hagsmuni kaupanda: 1.500 € |
| NIE númer – kennitala fyrir útlendinga:
Þú þarft að sækja um NIE númer ef þú ætlar að kaupa eign á Spáni. Við tryggjum að ferlið verði hratt og einfalt. 150 € |
Vatns- & Rafmagnsreikningar:
Upphæðin er mismunandi eftir því hvort þú kaupir nýja eign eða endursölu. 150 € - 400 € |
Skref 5 Árlegur Rekstrarkostnaður
Árlegur rekstrarkostnaður fasteignar getur verið misjafn eftir stærð, tegund og staðsetningu hennar. Þannig tilheyra t.d. sumar fasteignir ákveðnu húsfélagi með tilheyrandi kostnaði af sameiginlegri þjónustu s.s. umhirða og viðhald sameignar, garða, sundlaugar o.fl, á meðan að önnur hús tilheyra ekki húsfélagi. Fasteignagjöld geta jafnframt verið mishá, milli bæjarfélaga og héraða, auk þess sem þau reiknast út frá fermetratölu hverrar fasteignar. Svipað má segja um vatns og rafmagns kostnað þar sem kostnaður veltur á notkun og lengd dvalar í eigninni yfir árið.
Þar sem forsendur fyrir útreikningi á rekstrarkostnaði velta á mörgum og mismunandi þáttum þá tókum við saman dæmi um kostnað vegna reksturs 200.000 € fasteignar á ársgrundvelli, sem hægt er að hafa til hliðsjónar:
- Vatn og Rafmagn: €900 – €1,400
- Heimilistrygging: €250 – €400
- Húsfélagsgjöld: €400 – €900
- Fasteignagjöld: €200 – €350
- Skattur fyrir Óbúsetta (IRNR): €100 – €300
Afhverju kaupa hjá Perla Investments?
Yfir 25 ára reynsla í fasteignamarkaðnum á Spáni | Fjöltyngt teymi með íslenskum og spænskum löggiltum fasteignasölum, skjalaþýðanda og lögfræðingi | Með öll leyfi, tryggingar og réttindi | Traust fjölskyldufyrirtæki með áratuga reynslu |
Ert þú með spurningar? Hafðu samband við okkur hvenær sem er — við erum hér til að aðstoða.