Falleg íbúð til sölu í miðbæ Torrevieja, í göngufæri frá ströndinni! Íbúðin er á jarðhæð og býður upp á eitt svefnherbergi, eitt baðherbergi og opið eldhús sem tengist björtu stofurými. Frá svefnherberginu er útgengt á notalega einka verönd, um 9 m² að stærð. Í þessum íbúðarkjarna er sameiginleg sundlaug og öll nauðsynleg þjónusta og afþreying s.s. matvöruverslanir, veitingahús, barir og bankar í göngufæri.. Byggingin er frá árinu 2010 og íbúðin er seld með húsgögnum og heimilistækjum inniföldum– einstakt tækifæri bæði fyrir fasta búsetu eða sem sumarhús.
Verslunarmiðstöðina Habaneras er í einungis 5 mínútna akstri að heiman. Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin 15 mínútum frá þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m² verslunarhúsnæði, að ógleymdri heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 10 mínútna ökufjarlægð að heiman. Fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna fjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans. Einnig eru saltvötnin vinsælu skammt frá sem er einstök upplifun.