Byggð í miðjarðarhafsstíl í Los Dolores sem er rólegt úthverfi í bænum Rojales á Costa Blanca ströndinni.
Húsið er 87m2 að stærð, 30m2 solarium með 2 svefnherbergjum(með möguleika á þriðja svefnherbergi), 3 baðherbergjum og björtu alrými með eldhúsi og stofu með góðri tengingu við útisvæðið. Einnig fylgir eigninni rúmgóðar svalir.
Gæði eignarinnar, staðsetning og nálægð við alla þjónustu gera eignina þína að hinum fullkomna áfangastað hvort sem er til skammtíma eða langtíma dvalar.
Húsið er með bílastæði á lóðinni, einka sundlaug og dyrasíma.
Dolores er hefðbundinn skemmtilegur og líflegur bær og þar er finna alla nauðsynlega þjónustu og afþreyingu s.s. veitingastaði, matvöruverslanir og ótal margar gönguleiðir í fjölbreytilegri náttúru. Í innan við 10 mín akstur er svo að finna hina 11 kílómetra löngu gullnu strandlengju við Guardamar del Segura sem fengið hefur vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans, auk þess sem Elche, þriðja stærsta borg Valencia héraðs skammt frá.
Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!