Glæsileg endursölueign í Villamartín!
Falleg íbúð sem er tilbúin til afhendingar og fullbúin húsgögnum á flottum stað í Villamartín, vinsælu íbúðarhverfi. Villamartín býður upp á alla nauðsynlega þjónustu, eins og matvöruverslanir, banka, apótek, heilsugæslu og frábæran skóla.
Íbúðin er 62,9 m² með 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og opnu eldhúsi með fallegri og rúmgóðri stofu sem gengið er út á flottar svalir sem snúa í suður, með útsýni yfir sameiginlegan garð.
Eigninni fylgir bílastæði og geymsla, auk glæsilegar 41,93m² þaksvalir þar sem hægt er að njóta sólarinnar og afslöppunar allan daginn.
Glæsileg eign á frábærum stað — ekki láta þessa fram hjá þér fara!
Hér ertu nálægt allri þeirri þjónustu sem hugsast getur; stutt er í matvöruverslanir, apótek, veitingastaði og bari. Auk þess að vera aðeins nokkrar mínútur frá golfvöllunum Villamartín Golf, Campoamor Golf, Las Ramblas Golf og Las Colinas Golf, sem eru meðal þeirra bestu á svæðinu.
Í 15 mínútna fjarlægð er hinn spennandi og alþjóðlegi miðbær Torrevieja, þar sem finna má fjóra aðra golfvelli, hinar þekktu verslunarmiðstöðvar “Habaneras” og “La Zenia Boulevard”, frábært úrval veitingastaða, bara og kaffihúsa, vatnsrennibrautargarð sem og tvö heimsklassa sjúkrahús og mikið úrval hágæða spænskra sem og alþjóðlegra skóla.
Og fyrir sólarunnendur þá ertu á svæði sem býður upp á kílómetra langar strandir sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans. Þessi eign er frábærlega staðsett hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!