Þetta nútímalega, 2 hæða, vandlega hannaða 109,5m2, 3 svefnherbergja og 2 baðherbergja einbýli sem byggt er í svokölluðum Ibiza stíl er að finna í bænum Los Alcázares og eru gæði í hávegum höfð við hönnun þess. Glæsilegur afgirtur garður fylgir eigninni með rúmgóðri verönd, sundlaug og bílastæði innan lóðar.
Einnig stendur kaupendum til boða að bæta við þaksvölum gegn vægu gjaldi.
Los Alcázares er mjög vinsæll meðal þeirra sem stunda sjóíþróttir en býður einnig upp á allskyns aðra afþreyingu sem og uppákomur allt árið um kring. Alla nauðsinlega þjónustu er að finna í bænum s.s. heilsugæslu, apótek og matvöruverslanir sem og ótal veitingastaði og bari.
Stutt er að fara á golfvöllinn frá Los Alcázares en í nokkurra mínútna fjarlægð er að finna nokkra af fallegustu golfvöllum Spánar, Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna göngufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum.
Þessi eign er frábærlega staðsett, hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!