Einstaklega fallegt einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum í fyrstu línu við La Serena golfvöllinn í Los Alcázares. Rúmgott alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, þaðan sem hægt er að ganga út í fallegan garð með stórri verönd og sér sundlaug, en einnig er sér bílastæði inn á lóð.
Los Alcázares er mjög vinsæll meðal þeirra sem stunda sjóíþróttir en býður einnig upp á allskyns aðra afþreyingu sem og uppákomur allt árið um kring. Alla nauðsinlega þjónustu er að finna í bænum s.s. heilsugæslu, apótek og matvöruverslanir sem og ótal veitingastaði og bari.
Stutt er að fara á golfvöllinn frá Los Alcázares en í nokkurra mínútna fjarlægð er að finna nokkra af fallegustu golfvöllum Spánar, Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna göngufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum.
Þessi eign er frábærlega staðsett, hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa glæsilegu eign.