Hugsaðu STÓRKOSTLEG NÁTTÚRA – VÍNRÆKT – og EKTA SPÆNSK MENNING!
Þetta og miklu meira býður þín í hinum einstaka bæ Calasparra sem er að finna í fjöllunum í norður Múrcia héraði.
Þar sem við bjóðum upp á einstakt tækifæri til að eignast glæsilegt einbýlishús á einstöku verði. Sú eign sem um ræðir er 77,1m2 að stærð, með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, auk þess að státa af stórum 383m2 garði með sundlaug, 66,8m2 útiverönd sem og einkabílastæði á lóð.
Húsið er afhent fullbúið með heimilistækjum.
Í sama hverfi bjóðum jafnframt uppá svipuð einbýlishús með 3 svefnherbergjum.
Í næsta nágrenni er að finna alla nauðsynlega þjónustu og afþreyingu, þar sem finna má mikið úrval veitingahúsa, matvöruverslana o.fl.
Það sem gerir þessa eign einstaka er ekki síst staðsetning hennar, en hana er að finna í einu fallegasta náttúrusvæði Spánar. Hér ertu í miðju vínræktunarhéraði, umvafin stórkostlegu fjallendi, í hjarta rótgróinnar spænskrar menningar.
Ef þú hefur áhuga á útivist s.s. göngum í fallegri náttúru, fljótasiglingum, að skoða minjar frá forsögulegum tíma o.fl þá er þetta staðurinn fyrir þig. Hér ertu í hjarta spænskrar menningar og aldrei verið auðveldara að læra tungumálið meðal innfæddra!
Ekki láta þetta frábæra tækifæri til að eignast glæsilegt einbýli á einstökum stað renna þér úr greipum.
Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar!
Frekari upplýsingar :
- Til að fara á Skíði (í Sierra Nevada) – 3 klt. og 15 mín.
- Murcia & Alicante Flugvellir – 1 klt 15 mín.