Stórglæsileg einbýlishús á besta stað fyrir golfarann, staðsett alveg við golfvöllinn Altaona golf and Country club, stórskemmtilegum 18 holu golfvelli rétt fyrir utan borgina Murcia.
Húsið sem er 202,46 m2 að stærð er einstakt, þar sem svokallað "chillout" svæði er í miðju húsinu þar sem hægt er setjast niður og hlusta á vatnið sem umliggur svæðið og njóta. 4 stór svefnherbergi sem öll eru með sér baðherbergi með hita í gólfum og rúmgóðum fataskápum og þar að auki er eitt gesta baðherbergi á aðalhæð. Mjög gott flæði er á milli stofu, borðstofu og eldhúss þar sem gæða heimilistæki fylgja einnig með.
Á stórri lóðinni er fallegur garður með glæsileg sundlaug og einkabílastæði innan lóðar.
Í 15 mín fjarlægð við hverfið finnurðu alla þjónustu í Murcia borg. En þar má finna alla þá hluti sem stórar alþjóðlegar evrópskar borgir hafa uppá að bjóða.
Bjóðum uppá mikið úrval einbýlishúsa í þessu hverfi. Hægt að fá eignina sérsniðna eftir óskum kaupanda.
Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, hvort sem þú villt spila heimavöllinn þinn Altaona Golf , eða reyna við aðra velli í nágrenninu, en 8 átján holu vellir eru í innan við 20 mínútna fjarlægð að heiman. Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis um 20 mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.
Glæsilegt nýtt hús í hverfi í uppbyggingu með mikla framtíðarmöguleika.
Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar!