Þessi fallega 70,71m2 íbúð er á efri hæð í nýjum og glæsilegum íbúðarkjarna á frábærum stað í Torrevieja. Íbúðin er með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og mjög rúmgóðum þaksvölum með útsýni yfir salvatnið.
Íbúðinni fylgir aðgangur að fallegum sameiginlegum afgirtum garði með 2 sundlaugum og grænum svæðum þar sem tilvalið er að njóta sólarinnar í yfir 300 daga á ári.
Erum einnig með mikið úrval 2 svefnherbergja íbúða í þessum sama íbúðarkjarna
Þessi íbúðarkjarni er staðsettur rétt við „bleika“ saltvatnið í skemmtilegu og líflegu borginni Torrevieja. Fyrir náttúru unnendur er vinsælt að labba eða hjóla meðfram hinum áður nefndu salt vötnum, sem eru í göngufæri frá þessari glæsilegu eign, heimili hinna bleiku flamenco fugla og njóta þar fjölbreyttrar og fallegrar náttúru og lífríkis. Í 15 mínútna fjarlægð er svo hinn spennandi og alþjóðlegi miðbær Torrevieja, 5 golfvellir, 2 verslunarmiðstöðvar, frábært úrval veitingastaða, bara og kaffihúsa, vatnsrennibrautargarður sem og tvö heimsklassa sjúkrahús og mikið úrval hágæða spænskra sem og alþjóðlegra skóla.
Þessi eign er frábærlega staðsett til, hvort sem er, langtíma eða skammtíma dvalar.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!