Glæsileg 3 svefnherbergja neðri hæð í raðhúsi rétt fyrir utan líflega bæinn San Miguel de Salinas.
Íbúðin er 86,85m2 með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, eldhús, borðstofa og stofa í björtu og rúmgóðu alrými þaðan sem gengið er út á svalir með fallegu útsýni. Einnig fylgir íbúðinni óinnréttaður kjallari sem og aðgangur að sameiginlegu sundlaugarsvæði með fallegri sundlaug og grænum svæðum þar sem kjörið er að njóta sólarinnar sem skín í meira en 300 daga á ári.
Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í veitingastaði, súpermarkaði, almenningssamgöngur o.fl. Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdri heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman.
Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, en innan við 8 km radíus er að finna fjóra 18 holu golfvelli, s.s. Villamartin golfvöllinn, Campoamor Real Golf Klúbbinn, Las Ramblas golfvöllinn og Las Colinas völlinn.
Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!