Æðisleg þakíbúð í San Miguel á flottu verði
Við bjóðum upp á þessa glæsilegu þakíbúð í San Miguel. Þessi bjarta og rúmgóða íbúð er fullkomin fyrir þá sem leita að spænskri menningu og öllum þeim þjónustum sem það býður upp á, með frábærum veitingastöðum í nágrenninu og göngufæri í Golf.
Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur, veitingastaðir, súpermarkaðir, almenningssamgöngur o.fl. allt í göngufæri.
Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman.
Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, en innan við 8 km radíus er að finna fjóra 18 holu golfvelli, s.s. Villamartin golfvöllinn, Campoamor Real Golf Klúbbinn, Las Ramblas golfvöllinn og Las Colinas völlinn.
Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!