Mjög fallegar sérhæðir í göngufæri við ströndina á Punta Prima. Íbúðin sem er á jarðhæð er með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Með íbúðinni kemur sér garður, bæði fyrir framan og aftan hús ásamt veröndum. Aðgangur að glæsilegum, sameiginlegum garði með sundlaug, barnalaug, heitum potti, leiksvæði fyrir börn og íþróttasvæði fylgir einnig sem og bílastæði í bílakjallara.
Glæsileg eign á frábærum stað, ekki láta þessa fram hjá þér fara!
Auk þessarar eignar, bjóðum við einnig uppá einbýlishús og 2 herbergja íbúðir á efri hæð með þaksvölum í þessum sama íbúðarkjarna.
Hér ertu nálægt allri þeirri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í matvöruverslanir, apótek, veitingastaði og bari. Auk þess að vera aðeins nokkra mínútur frá ströndinni. Í 15 mínútna fjarlægð er svo hinn spennandi og alþjóðlegi miðbær Torrevieja, 5 golfvellir, hinar þekktu verslunarmiðstöðvar "Habaneras" og La "Zenia Boulevard", frábært úrval veitingastaða, bara og kaffihúsa, vatnsrennibrautargarður sem og tvö heimsklassa sjúkrahús og mikið úrval hágæða spænskra sem og alþjóðlegra skóla.
Og fyrir sólarunnendur þá ertu á svæði sem bíður uppá kílómetra langar strandir sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans. Þessi eign er frábærlega staðsett hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!