Perla Investments kynnir nýjar lúxusíbúðir á Playa Flamenca, í göngufæri við hina glæsilegu Playa Flamenca strönd.
Íbúðin sem um ræðir er 98,52m2 og með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum með hita í gólfi. Íbúðinni fylgja glæsilegar svalir auk þaksvala sem eru 113,90m2 að stærð með útsýni til allra átta.
Aðgengi er að glæsilegum afgirtum sameiginlegum garði, en í honum er að finna stóra sundlaug, leiksvæði fyrir börn, græn svæði sem eru tilvalin til að njóta sólarinnar sem skín í allt að 300 daga á ári. Einnig er líkamsræktaraðstaða með sauna.
Að auki fylgir 2 sérbílastæði í bílakjallara. Íbúðin skilast fullbúin með húsgögnum og heimilistækjum svo það eina sem þarf er að koma með sundföt og góða skapið.
Hér ertu nálægt allri þjónustu s.s. stutt er í matvöruverslanir, apótek og á veitingastaði. Einungis 8 mínútur á bil að fara á hinn fræga Villamartín golfvöll og 10 mínútur að ganga í La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina. Stutt er að fara á fallegar strendur Bjóðum upp á gott úrval eigna í þessari íbúðabyggingu.
Þessi eign er frábærlega staðsett, hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Frekari upplýsingar ef óskað er eftir hjá sölufólki Perlu.