Íbúðin er 53m2 að innan með 2 svefnherbergjum og 1 baðherbergi. Með íbúðinni kemur einnig fullbúið ný uppgert eldhús með heimilistækjum og stofu sem gengið er út að framan í 20m2 útisvæði sem hægt er að njóta sín allt í 300 sólardögum á ári, einnig er hægt að ganga út á lítið geymslusvæði hjá eldhúsinu.
Íbúðin er í flottu hverfi með sameiginlega sundlaug.
Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í veitingastaði, súpermarkaði, almenningssamgöngur o.fl. Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdri heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman.
Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, en innan við 8 km radíus er að finna fjóra 18 holu golfvelli, s.s. Villamartin golfvöllinn, Campoamor Real Golf Klúbbinn, Las Ramblas golfvöllinn og Las Colinas völlinn.
Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!