Glæsileg íbúð á efri hæð í nýju raðhúsi í Pilar de la Horadada í göngufæri við strönd.
Íbúðin sem er 75,28m2 er með 3 svefnherbergjum með innbyggðum skápum, 2 baðherbergjum, mjög rúmgóðum þaksvölum með glæsilegu útsýni og sér bílastæði með í bílakjallara. Aðgangur að glæsilegum sameiginlegum lokuðum garði með tveimur sundlaugum, þar af önnur fyrir börn.
Erum einnig með 3 herbergja íbúðir á efri hæð með þaksvölum í þessum sama íbúðarkjarna.
Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur s.s. matvöruverslun, apótek, heilsugæslu, skóla, veitingastaði og miðbæ Pilar de la Horadada, og innan við 20 mínútna fjarlægð frá átta golfvöllum og hinni þekktu verslunarmiðstöð Zenia Boulevard svo eitthvað sé nefnt.
Þessi staðsetningar hentar mjög vel hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna göngufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans. Þessi eign er frábærlega staðsett, hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!