Falleg sérhæð í Pilar de la Horadada
Glæsilegar sérhæðir á jarðhæð í Pilar de la Horadada, rétt sunnan við Torrevieja.
Íbúðin sem um ræðir er með 2 svefnherbergjum með innbyggðum fataskápum, 2 baðherbergjum með hita í gólfi og björtu alrými með fullbúnu eldhúsi með gæða heimilistækjum og stofu en þaðan er gengið út á mjög rúmgóða verönd.
Einnig fylgir íbúðinni aðgangur að sameiginlegum garði með sundlaug.
Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í matvöruverslun, apótek, veitingastaði í miðbæ Pilar de la Horadada, og innan við 20 mínútna fjarlægð frá átta golfvöllum og hinni þekktu verslunarmiðstöð Zenia Boulevard svo eitthvað sé nefnt.
Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna göngufæri frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans. Þessi eign er frábærlega staðsett, hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!