Sannkölluð draumaeign golfarans en þessi glæsilegu hús eru staðsett aðeins 100 metrum frá golfvellinum Lo Romero, rétt fyrir utan Pilar de la Horadada.
Glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum í göngufæri við golfvöllinn. Húsið er 126m2 með 3 svefnherbergjum með innbyggðum fataskápum og 4 baðherbergjum með hita í gólfum. Stórt og bjart alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu með góðri tengingu við útisvæðið en þar er að finna sér sundlaug og sér bílastæði inn á lóð auk þess fylgja einnig rúmgóðar þaksvalir með fallegu útsýni.
Fullkomin eign fyrir golfáhugamanninn.
Lo Romero golfvöllurinn er glæsilegur og vinsæll 18 holu golfvöllur rétt sunnan við Torrevieja, betur þekktur undir nafninu „golf eyjan“ og státar af frábærri aðstöðu til golfiðkunar og íðilfagurri náttúru þar sem fagur litaðir fuglar og íkornar setja svip sinn á umhverfið.
Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur s.s. matvöruverslun, apótek, heilsugæslu, skóla, veitingastaði og miðbæ Pilar de la Horadada, og innan við 20 mínútna fjarlægð frá hinni þekktu verslunarmiðstöð Zenia Boulevard svo eitthvað sé nefnt.
Þessi staðsetningar hentar mjög vel hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna fjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.
Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!