Þetta einstaklega glæsilega einbýlishús er að finna í hinum skemmtilega Los Montesinos bæ.
Eignin er 108m2 með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, stórum svölum með útsýni til yfir Saltvötnin frægu, rúmgóðum svölum, sundlaug og stórum fallegum garði. Eigninni fylgja raftæki auk þess sem öll ljós að utan og innan eru innifalin.
Í innan við 10 mínútna fjarlægð er svo hinn spennandi og alþjóðlega borg Torrevieja, 5 golfvellir, 2 verslunarmiðstöðvar, frábært úrval veitingastaða og kaffihúsa, vatnsrennibrautagarður sem og tvö heimsklassa sjúkrahús og mikið úrval hágæða spænskra sem og alþjóðlegra skóla. Að ógleymdu nýju tónlistarhúsi Torrevieja þar sem að öllu jöfnu má finna fjölbreytt úrval viðburða ár hvert.
Fyrir náttúru unnendur er vinsælt að labba eða hjóla meðfram hinum áður nefndu salt vötnum, sem eru í 15 mínútna göngufæri frá þessari glæsilegu eign, heimili hinna bleiku flamenco fugla og njóta þar fjölbreyttrar og fallegrar náttúru og lífríkis.
Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar!