Glæsilegt einbýlishús við hinn margverðlaunaða, Las Colinas golfvöllinn. Húsið sem er 150m2 er á tveimur hæðum, á aðalhæð er glæsileg hjónasvíta með sér baðherbergi með hita í gólfi og stórum fataskápum, gestaklósett og bjart og rúmgott alrími með fullbúnu eldhúsi með hágæða heimilistækjum, stofa og borðstofa en þaðan er hægt að ganga út á glæsilega verönd með stórri sundlaug. Á efri hæð eru svo 2 svefnherbergi og baðherbergi með hita í gólfi og stórar svalir með frábæru útsýni. Einnig fylgir eigninni glæsilegur garður og sér bílastæði.
Gæði og glæsileiki eru í hávegum höfð við hönnun þessa húss sem er byggt eftir ströngustu gæða stöðlum, eignin er einnig útbúin innbyggðu snjall kerfi, hita í gólfum og að auki fylgir því heimilistæki, innbyggður vínkælir og loftræstikerfi.
Þessi eign er í nálægð við klúbbhúsið og rúmgott æfingasvæðið, veitingastað, bar og SPA svo eitthvað sé nefnt.
Fyrir náttúru unnendur er jafnframt vinsælt að labba eða hjóla í Sierra de Escalona náttúruverndar svæðinu sem umkringir Las Colinas, en þar er að finna mikið náttúrulíf. Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdri heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 20 mínútna ökufjarlægð að heiman.
Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.
Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!