Heimilistækja pakki fylgir með í takmarkaðan tíma!
Þessi fallega 2 svefnherbergja og 2 baðherbergja sérhæð með 61m2 sólarþaki er hágæða eign staðsett á óskastað jafnt golfarans sem og náttúru unnandans. Eignin er útbúin þjófavarnarkerfi með myndavél, sér bílastæði og aðgangur að glæsilegri sameiginlegri sundlaug fylgir einnig.
Staðsett í Los Lagos íbúðarkjarnanum við La Finca golfvöllinn þar sem óviðjafnanlegt útsýni til allra átta, glæsilegt sundlaugarsvæði og nálægð við alla þjónustu gera eignina þína að hinum fullkomna áfangastað hvort sem er til skammtíma eða langtíma dvalar.
Í næsta nágrenni við hverfið finnurðu alla nauðsynlega þjónustu í bænum Algorfa, s.s. veitingastaði, súpermarkaði, almenningssamgöngur o.fl. En auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman. Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, hvort sem þú villt spila heimavöllinn þinn La Finca, eða reyna við aðra velli í nágrenninu, en 8 átján holu vellir eru í innan við 20 mínútna fjarlægð að heiman. Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.
Jafnframt er hægt að fá sambærilega eign á jarðhæð með garði - nú eða raðhús með sólarþaki og garði.
Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar!