Glæsileg einbýlishús á einni hæð við hinn skemmtilega La Finca golfvöll. Húsið sem er 122,15m2 að stærð er með 3 svefnherbergjum sem öll eru með hurð út í garð, 2 baðherbergjum og björtu og rúmgóðu alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu með mjög góðri tengingu við útisvæðið sem hefur að geyma stóra verönd, sundlaug og sér bílastæði inn á lóð. Einnig fylgja glæsilegar og mjög rúmgóðar þaksvalir með fallegu útsýni.
Gæði eignarinnar, staðsetning og nálægð við alla þjónustu gera þessa eign að hinum fullkomna áfangastað hvort sem er til skammtíma eða langtíma dvalar.
Í næsta nágrenni við hverfið finnurðu alla nauðsynlega þjónustu í bænum Algorfa, s.s. veitingastaði, súpermarkaði, almenningssamgöngur o.fl. En auk þess ertu í göngufæri við verslunarkjarna þar sem mikið er um veitingastaði og bari, Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin er líka skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman.
Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, hvort sem þú villt spila heimavöllinn þinn La Finca, eða reyna við aðra velli í nágrenninu, en 8 átján holu vellir eru í innan við 20 mínútna fjarlægð að heiman. Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.
Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar!