Bjartar og fallegar íbúðir með útsýni til sjávar í Guardamar del Segura. Íbúðin er á tveimur hæðum með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum með hita í gólfum. Rúmgóð verönd og glæsilegar þaksvalir með frábæru útsýni fylgir einnig með íbúðinni sem og aðgangur að sameiginlegum garði með sundlaug og sér bílastæði í bílakjallara.
Guardamar del Segura er mjög skemmtilegur strandbær við Costa Blanca ströndina, en strandsvæðið í Guardamar er með þeim fallegustu við þessa strandlengju. Bærinn sjálfur bíður upp á alla nauðsynlega þjónustu s.s. spítala, apótek, matvöruverslanir og svo má að auki finna fjöldann allan af glæsilegum veitingastöðum, börum og alls kyns afþreyingu fyrir alla aldurshópa.
innan við 15 mínútur akstur finnurðu svo 4 golfvelli, tvær verslunarmiðstöðvar (Habaneras og Zenia Boulevard), hinn spennandi og þéttsetna miðbæ Torrevieja, tívolí, hin fallegu náttúrulegu saltvötn Torrevieja sem og hið glæsilega verndað náttúrusvæði sem liggur við sjóinn milli La Mata og Guardamar bæjarins.
Hafðu samband til að fá frekri upplýsingar um þessa frábæru eign!