Glæsileg ný þakíbúð í skemmtilega hverfinu El Raso í Guardamar, frábær staðsetning.
Íbúðin er með 3 svefnherbergjum með innbyggðum fataskápum og 2 baðherbergjum. Bjart og rúmgott alrými með fullbúnu eldhúsi með gæða heimilistækjum, borðstofu og stofu þaðan sem útgengt er á mjög rúmgóðar svalir. Íbúðinni fylgja einnig glæsilegar þaksvalir með nuddpotti og útieldhúsi, sér bílastæði í bílakjallara og aðgangur að glæsilegum sameiginlegum garði þar sem er að finna stóra sundlaug, innilaug, leiksvæði fyrir börn, bocca völl, púttvöll og stór græn svæði þar sem hægt er að njóta sólarinnar sem skín í meira en 300 daga á ári.
Erum með mikið úrval eigna á skrá í þessu frábæra íbúðahverfi.
Í nærliggjandi umhverfi er að finna alla nauðsynlega þjónustu og afþreyingu, s.s. mikið úrval veitingahúsa, matvöruverslanir o.fl. Í innan við 15 mínútur akstur finnurðu svo 4 golfvelli, tvær verslunarmiðstöðvar (Las Habaneras og Zenia Boulevard), hinn spennandi og þéttsetna miðbæ Torrevieja, tívolí, hin fallegu náttúrulegu saltvötn Torrevieja sem og hið glæsilega verndað náttúrusvæði sem liggur við sjóinn milli La Mata og Guardamar bæjarins.
Hafðu samband til að fá frekari upplýsinga um þessa æðislegu eign!