Raðhús - frjárfestingatækifæri
Þetta skemmtilega raðhús er staðsett í El Galán hverfinu, sem liggur skammt frá Villamartín, Campoamor og Las Ramblas golf-, og íbúðar svæðunum. Og er sannarlega spennandi fjárfestingakostur fyrir þá sem vilja eignast eign á einstaklega góðu verði. Eignin telur 75,68 m2 auk verandar, svala út af hjónaherbergi sem er með útsýni til sjávar, einkabílastæði á lóð auk sundlaugar sem er á sameiginlegu svæði húsfélagsins við enda raðhúsalengjunnar.
Í göngufæri er hægt að sækja alla þjónustu og stutt að rölta á veitingastaði, kaffihús og bari auk þess sem að einka grunn,- og framhaldsskóli er í næsta nágrenni þar sem kennsla fer fram á ensku og spænsku.
Auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin skammt frá, þar sem þín bíður mikið úrval verslana í yfir 80.000 m2 verslunarhúsnæði, að ógleymdir heilbrigðisþjónustu hins margrómaða Torrevieja spítala sem er í 15 mínútna ökufjarlægð að heiman. Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, en innan við 4 km radíus er að finna fjóra 18 holu golfvelli, s.s. Villamartin golfvöllinn, Campoamor Real Golf Klúbbinn, Las Ramblas golfvöllinn og Las Colinas völlinn. Og fyrir sólarunnendur þá ertu í einungis nokkura mínútna ökufjarlægð frá kílómetra löngum breiðum af fín sendnum ströndum sem hafa fengið vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans.
Húsið var nýlega málað að innan og er í góðu ásigkomulagi, og býður þess að taka vel á móti nýjum eigendum.
Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar um þennan frábæra fjárfestingakost