Mjög heillandi einbýlishús í rólegri götu í bænum Ciudad Quesada, um 15 mínútum frá Torrevieja. Húsið sem er á tveimur hæðum er með 4 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Mjög rúmgott og bjart alrými með fullbúnu eldhúsi með hágæða heimilistækjum, borðstofa og stofa en frá henni er gengið út á stóra verönd með sér sundlaug. Einnig fylgir bílskúr með eigninni og þvottahús innan íbúðar.
Ciudad Quesada er afar skemmtilegur og líflegur bær á Costa Blanca ströndinni sem hefur upp á allt að bjóða allan ársins hring, mikið úrval veitingastaða, verslana og allskyns afþreyingu fyrir allan aldurshóp s.s. Go-Kart, vatnsleikjagarð, mini golf, keiluhöll og fleira og fleira, svo er örstutt á glæsilega golfvöllinn La Marquesa, 18 holu golfvöll með allt til alls fyrir golfspilarann. Fyrir náttúruunnendur eru fjölmargar náttúruperlur allt í kring um bæinn og má þar meðal annars nefna Saltvötnin í Torrevieja og náttúruverndarsvæðið El Recorral þar sem vinsælt er að fara í lautarferð og fylgjast með iðandi fuglalífinu eða skella sér í göngutúr á þeim ótal gönguleiðum á svæðinu.
Innan við 10 mín akstur er svo að finna hina 11 kílómetra löngu gullnu strandlengju við Guardamar del Segura sem fengið hefur vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans, auk þess sem Torrevieja er stutt frá. Svo er einnig stutt í verslunarmiðstöðvarnar Habaneras og La Zenia og aðeins 35 mínútur frá flugvellinum í Alicante.
Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!