Í þessum glæsilegu og vel hönnuðu einbýlishúsum sem staðsett eru í úthverfi Finestrat, í hlíðunum rétt fyrir ofan Benidorm, fær birtan að njóta sín í gegnum allt húsið.
Húsið er 131,2 m2 að stærð, er afhent með hágæða innréttingum auk heimilistækja í eldhúsi og innbyggðu öryggiskerfi sem og stórum og flottum garði en í honum er að finna, stóra verönd, bílastæði fyrir 2 bíla og glæsilega sundlaug. 3 rúmgóð svefnherbergi eru í húsunum og er þar af ein hjóna svita með stórum gæða skápum.
Einstakt útsýni frá svölunum! Bjóðum uppá mikið úrval eigna í þessu glæsilega hverfi.
Mjög stutt er í allar áttir frá Finestrat, sem staðsettur er skammt frá Benidorm á norðurströnd Costa Blanca, hvort sem löngunin er í rólegt umhverfi eða skemmtanalífið í Benidorm þar sem um nokkurra mínútna akstur er þangað, einnig má finna Aqualandia, vatnsleikjagarðinn, Terra Mítica tívolíið, Terra Natura dýragarðinn og nokkra golfvelli þar í kring og grunnskóli í göngufæri svo að þessi eign hentar afar vel hvort sem dvalið er til skamms eða langtíma.
Einnig er dásamlegt að kíkja í gamla bæinn en hann hefur upp á allt það besta að bjóða í spænskri menningu, þar er óviðjafnanlegt að rölta um, bragða á matargerðalist heimamanna, já eða synda í tærum sjónum.
Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!