Björt og nútímaleg hæð í bænum Finestrat, sem staðsettur er skammt frá Benidorm á norður strönd Costa Blanca. Bærinn hefur upp á allt það besta að bjóða í spænskri menningu, en þar er óviðjafnanlegt að rölta um gamla bæinn, bragða á matargerðalist heimamanna, já eða synda í tærum sjónum.
Í íbúðinni sem er á jarðhæð eru 2 svefnherbergi, 2 baðherbergi og glæsilegur sérgarður með stórri verönd og sér sundlaug. Þessa eign er hægt að fá fullbúna með húsgögnum og heimilistækjum sé þess óskað.
Glæsileg eign með töfrandi útsýni á frábærum stað nálægt skóla, matvöruverslun og annarri nauðsynlegri þjónustu og er því tilvalin hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Bjóðum viðskiptavinum okkar uppá úrval eigna í þessu glæsilega hverfi.
Mjög stutt er í allar áttir frá Finestrat, sem staðsettur er skammt frá Benidorm á norðurströnd Costa Blanca, hvort sem löngunin er í rólegt umhverfi eða skemmtanalífið í Benidorm þar sem um nokkurra mínútna akstur er þangað, einnig má finna Aqualandia, vatnsleikjagarðinn, Terra Mítica tívolíið, Terra Natura dýragarðinn og nokkra golfvelli þar í kring.
Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!