Bjart og nútímalegt raðhús í bænum Finestrat, sem staðsettur er skammt frá Benidorm á norður strönd Costa Blanca. Bærinn hefur upp á allt það besta að bjóða í spænskri menningu, en þar er óviðjafnanlegt að rölta um gamla bæinn, bragða á matargerðalist heimamanna, já eða synda í tærum sjónum.
Húsið sem er á tveimur hæðum er með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og glæsilegum sérgarður með stórri verönd og sér sundlaug, einnig hægt að fá svipaða eign með rúmgóðum þaksvölum. Þessa eign er hægt að fá fullbúna með húsgögnum og heimilistækjum sé þess óskað.
Glæsileg eign með frábært útsýni á frábærum stað nálægt skóla, matvöruverslun og annarri nauðsynlegri þjónustu og er því tilvalin hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Bjóðum viðskiptavinum okkar uppá úrval eigna í þessu glæsilega hverfi.
Mjög stutt er í allar áttir frá Finestrat, sem staðsettur er skammt frá Benidorm á norðurströnd Costa Blanca, hvort sem löngunin er í rólegt umhverfi eða skemmtanalífið í Benidorm þar sem um nokkurra mínútna akstur er þangað, einnig má finna Aqualandia, vatnsleikjagarðinn, Terra Mítica, skemmtigarðinn, Terra Natura dýragarðinn og nokkra golfvelli þar í kring.
Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!