Þessi fallega eign sem hefur nýtanlega103m2 mun hafa þrjú stór svefnherbergi og þrjú glæsileg baðherbergi til að veita íbúum þægindi og næði, rúmgóða stofan/borðstofan með innbyggðu eldhúsi í nútímalegri hönnun með gæða heimilistækjum. Fallegar 33,50 m2 svalir sem hægt er að njóta í sólinni allt að 300 daga á ári.
Æðislegur sameiginlegur garður með flottum leikveli fyrir þau yngstu og einnig með stórri sundlaug og svæði til að slaka á!
Glæsileg eign með töfrandi útsýni á frábærum stað nálægt skóla, matvöruverslun og annarri nauðsynlegri þjónustu og er því tilvalin hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Mjög stutt er í allar áttir frá Finestrat, sem staðsettur er skammt frá Benidorm á norðurströnd Costa Blanca, hvort sem löngunin er í rólegt umhverfi eða skemmtanalífið í Benidorm þar sem um nokkurra mínútna akstur er þangað, einnig má finna Aqualandia, vatnsleikjagarðinn, Terra Mítica tívolíið, Terra Natura dýragarðinn og nokkra golfvelli þar í kring.
Einnig er dásamlegt að kíkja í gamla bæinn en hann hefur upp á allt það besta að bjóða í spænskri menningu, þar er óviðjafnanlegt að rölta um, bragða á matargerðalist heimamanna, já eða synda í tærum sjónum.
Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!