Einstaklega fallegt og vandað einbýli í mjög flottu og nýju hverfi í Finestrat með útsýni til sjávar. Örfáum mínútum frá Benidorm.
Einbýlishúsið er á 504m2 stórri lóð og eru150m2 nýtanlegir með 3 svefnherbergjum með fataskápum, 3 baðherbergjum og rúmgóðu, björtu alrými með eldhúsi og stofu þaðan sem gengið er út í mjög stórann garð með 28,00m2 sundlaug og grænu svæði.
Glæsileg eign með töfrandi útsýni á frábærum stað nálægt skóla, matvöruverslun og annarri nauðsynlegri þjónustu og er því tilvalin hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Mjög stutt er í allar áttir frá Finestrat, sem staðsettur er skammt frá Benidorm á norðurströnd Costa Blanca, hvort sem löngunin er í rólegt umhverfi eða skemmtanalífið í Benidorm þar sem um nokkurra mínútna akstur er þangað, einnig má finna Aqualandia, vatnsleikjagarðinn, Terra Mítica tívolíið, Terra Natura dýragarðinn og nokkra golfvelli þar í kring.
Einnig er dásamlegt að kíkja í gamla bæinn en hann hefur upp á allt það besta að bjóða í spænskri menningu, þar er óviðjafnanlegt að rölta um, bragða á matargerðalist heimamanna, já eða synda í tærum sjónum.
Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!