Glæsilegar íbúðir á tveimur hæðum í hlíðum Benidorm. Íbúðirnar eru með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, stórum svölum með frábæru útsýni og mjög rúmgóðum kjallara. Með íbúðunum fylgja hágæða heimilistæki, sér bílastæði í bílakjallara og aðgangur að einum glæsilegasta íbúðarkjarna á svæðinu en þar er að finna, innisundlaug, útisundlaug, leiksvæði fyrir börn, líkamsrækt, tennisvelli og margt, margt fleira.
Glæsileg eign með frábæru útsýni á frábærum nálægt skóla, matvöruverslun og annarri nauðsynlegri þjónustu og er því tilvalin hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Bjóðum viðskiptavinum okkar uppá úrval eigna í þessu glæsilega hverfi.
Mjög stutt er í allar áttir frá Finestrat, sem staðsettur er skammt frá Benidorm á norðurströnd Costa Blanca, hvort sem löngunin er í rólegt umhverfi eða skemmtanalífið í Benidorm þar sem um nokkurra mínútna akstur er þangað, einnig má finna Aqualandia, vatnsleikjagarðinn, Terra Mítica tívolíið, Terra Natura dýragarðinn og nokkra golfvelli þar í kring.
Einnig er dásamlegt að kíkja í gamla bæinn en hann hefur upp á allt það besta að bjóða í spænskri menningu, þar er óviðjafnanlegt að rölta um, bragða á matargerðalist heimamanna, já eða synda í tærum sjónum.
Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!