Þessi glæsilega íbúð er staðsett í rólegu hverfi fyrir ofan Benidorm, örstutt frá strönd og golfvelli.
Íbúðin sem um ræðir er með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Bjart og rúmgott alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu og stórum sér garði. Íbúðinni fylgir loftkæling, þvottahús innan íbúðar og sér bílastæði í bílakjallara þar sem búið er að gera ráð fyrir hleðslustöð.
Aðgangur að stórglæsilegum sameiginlegum garði með 2 sundlaugum, þar af einni barnalaug, grænum svæðum og leiksvæði fyrir börn fylgir einnig.
Glæsileg eign með töfrandi útsýni á frábærum stað nálægt skóla, matvöruverslun og annarri nauðsynlegri þjónustu og er því tilvalin hvort sem er til langtíma eða skammtíma dvalar.
Bjóðum viðskiptavinum okkar uppá úrval eigna í þessu glæsilega hverfi.
Mjög stutt er í allar áttir frá Finestrat, sem staðsettur er skammt frá Benidorm á norðurströnd Costa Blanca, hvort sem löngunin er í rólegt umhverfi eða skemmtanalífið í Benidorm þar sem um nokkurra mínútna akstur er þangað, einnig má finna Aqualandia, vatnsleikjagarðinn, Terra Mítica tívolíið, Terra Natura dýragarðinn og nokkra golfvelli þar í kring.
Einnig er dásamlegt að kíkja í gamla bæinn en hann hefur upp á allt það besta að bjóða í spænskri menningu, þar er óviðjafnanlegt að rölta um, bragða á matargerðalist heimamanna, já eða synda í tærum sjónum.
Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!